HÆTT!Sara Hilmars
Er samt komin með aðra síðu, með Anítu og Kristínu Lilju ;);* www.blog.central.is/chicas_
Tjékk it át!! ;)
Sara <33
Frábær helgi :PSara Hilmars
[np; stairway to heaven techno remix <3 ;*]
[dressed; diesel buxur, grænn bolur og svört peysa]
jæja, er ekki málið að blogga aðeins um helgina??
*Föstudagur- dagurinn byrjaði bara voða venjulega, skóli og svona.. skutlaðist svo aðeins með múttu aftur á selfoss og fór svo bara í sturtu og svona. Svo var bara byrjað að gera sig ready fyrir ballið og um hálf 10 skutlaði Sindri mér niðrí rútu. Það var bara rosa stemning í rútunni, mikið hlegið, sungið og drukkið hehe ;) Allir voru orðnir svona vel í því þegar við komum svo á Borg. Við mættum fyrst eins og alltaf, voða töff.. ehe.. En já, svo var bara dansað og sungið og spjallað við hitt og þetta fólk hehe Fyrir utan eitthvað smá drama var þetta bara alveg frábært ball :) Ég nennti svo ekki í eftirpartýið á selfossi svo ég fór bara heim að lúlla um svona 4-5 leytið :P
*Laugardagur- svaf til svona 1 og druslaðist svo fram úr. Dagurinn fór svo bara í eitthvað tjill hérna heim ;) Eftir kvöldmat skutlaði pabbi mér í Þorló til Anítu sætu ;**
Við vorum bara eitthvað að tjilla og svo komu Halli, Daníel og Víkingu ;* Og við vorum bara eitthvað að spjalla og hlusta á tónlist og svona. Geðveikt nice sko. Strákarnir fór svo eitthvað um 1 leytið held ég og þá fórum við Anní bara eitthvað í tölvuna að nördast hehe Fundum þennan 'leik' sem er bara of fyndinn sko! Hann heitir Wheeeee
http://www.cartoonnetwork.com/games/fosters/wheeeee/index.html
við bókstaflega grenjuðum úr hlátri sko hahah :'D
Fengum okkur svo núðlur að borða um svona 4 leytið haha cause we're cool like that ;) Svo fórum við bara uppí rúm um 5 og vorum eitthvað á trúnó og sofnuðum svo bara ;)


*Sunnudagur- Vöknuðum um 1 leytið og fengum okkur að borða. Vorum svo bara í einhverju tjilli uppí rúmi, horfðum á sænska eurovison og svona ;) haha
Svo hringdi Krissi og sagðist ætla að kíkja á okkur svo við máluðum okkur og hann og einhver vinur hans komu svo og við fórum bara eitthvað á rúntinn, blasta technoinu og svona hahah geðveikt töff sko :P
Uuu svo fórum við bara aftur heim til Anítu og vorum bara eitthvaða að tjilla þangað til það var komið að ná í mig um 6 leytið. Ég var svo bara róleg heima um kvöldið, bara eitthvað á spjallinu með Söndru sys, voða nice ;)
Svo var náttúrulega skóli í dag.. æðislegt.. er að fkn DRUKKNA í heimavinnu! er að fara í 1 próf á mið. 4 á fimmtu. og 1 á fös. og plús það þá þarf ég að skila ritgerð á fimmtudaginn 8-) Þetta er náttúrulega ekki eðlilegt.. En svona er þetta víst..
Óska eftir einhverjum sem vill þýða Drengene fra skt. petri fyrir mig :/ hver skilur þessa bók???
En þetta er orðið aaaalltof langt hjá mér! Ætla að skella inn myndum frá laugardeginum so stay tuned ;)
Ciao bella ;***
Myndir!Sara Hilmars
ERU KOMNAR INN!!
TJÉKK IT ÁT PEEPZ (H) ;)

Blogg?Sara Hilmars
[np; cascada - truly madly deeply techno remix <3]
[dressed; náttbuxur, bolur og peysa]
Tími á blogg?
Vikan er bara búin að vera voða venjuleg.. skóli, heimavinna, enginn svefn *geisp* hlakka til að sofa út á morgun!
Ég fór í bóklega í morgun... og féll :/ Það var nú samt frekar tæpt, var með 4v í fyrri hlutanum og 2 í seinni.. :S Harpa Dögg sæta náði, til hamingju elskan ;*
Eeen ég tek þetta bara með stæl næst, þaggi? ;)

Hver vill gefa mér svona í afmælisgjöf? :D
Svo er ball annað kvöld í Borg. Ætla ekki allir að mæta?? Get ekki beðið sko! Þetta verður sjúúklega gaman. Held að allir stefni á það að verða alveg bliind blekaðir og hressir ;) hehe Oxford verður að spila og hef ég heyrt að þeir séu bara mjög góðir á balli. En ég meina, held að enginn muni muna eftir þeim hvort sem er ;P haha


En jæja, nennekkaðbloggameira!
Ciao bella ;*
Síðan að deyja??Sara Hilmars
[np; luxurious - gwen stefani]
[dressed; svört peysa, brúnn bolur og náttbuxur ;)]
Þessi síða er gjöörsamlega að deyja..
Er kannski málið að láta hana bara deyja?
Það skoðar hana hvort sem er enginn held ég :/
Aaaaanyway...
Síðasta helgi var bara fín. Á laugardaginn hittumst ég, maría og tinna afmælisbörn, heiða,karen og elsie á Kidda og borðuðum saman, svona í tilefni af afmæli stelpnanna. Fleiri stelpur ætluðu nú að mæta en beiluðu svo bara.. eða eitthvað..
En Birna og Thelma kíktu samt aðeins á okkur ;)
Eftir matinn héldum við stelpurnar svo heim til Karenar. Planið var nú að reyna að kíkja eitthvað út.. en við ákváðum svo að vera bara heima og hafa það næs ;)
Svo það var sullað eitthvað og hlegið og spjallað.. svo vorum við allar orðnar voða þreyttar svo það var bara farið heim snemma :P hehe En já, þetta var bara mjög gott kvöld ;)
Annars var helgin bara tekin í tjill og lítið merkilegt gert svosem..
Svo er vikan bara búin að fara í þetta venjulega.. skólann, heimavinnu, rúnt..
Mikið get ég ekki BEÐIÐ eftir sumrinu!! Skólinn er nýbyrjaður en ég er strax farin að finna fyrir vott af skólaleiða :/ ekki gott...
Það er kvöldvaka í kvöld í FSU. Verð að segja að ég nenni bara engan veginn :/ Tími því líka eiginlega ekki (a) haha þegiði, ég er fátæk :P
Svo er bara baaaall 2.feb á Borg ;) Hlakka geðveikt mikið til! Stelpur, er ekki málið að hittast eitthvað fyrir ballið? Svona as usual? ;) hehe What do you say?
Síðan er það afmælið mitt 20. og bíííílpróóóóf! :D Ef ég næ bóklega það er að segja.. beilaði á að fara í það í morgun.. var ekkert búin að læra (a) ehe..
En jæja.. föstudagur i morgen! Hvað á að gera um helgina??
Kvitta takk ;);)
Bleeee <33
Daaaginn ;)Sara Hilmars
Og er það svo ekki bara rúntur?? ;);) heheh

En annars er voða lítið að frétta. Er bara í skólanum í gati.. voða gaman ;) hehe Á bara einn tíma eftir og þá er maður kominn í heeeelgarfrí! Loksins segji ég bara, er búin að vera eitthvað voða þreytt þessa vikuna :/

Ég kláraði ökuskóla 2 á mánudaginn og fer í bóklega á fimmtudaginn næsta. Ég ætla mér svo að ná þessu prófi! Nenni ekki að taka það eitthvað mörgu sinnum... hef líka ekki efni á því *-)
Helgin? veit ekki alveg hvað verður gert. Er alveg til i eitthvað gott djamm. En ég hitti stelpunnar pottþétt eitthvað og það verður rúntað eða e-ð sniðugt ;) hehe
En ég nenni ekki að hafa þetta lengra...
Ciao Ciao ;);*
P.S. Kommenta takk ;)
Sara Hilmars
Þá er skólinn byrjaður aftur eftir langt og gott jólafrí. Ég þurfti að breyta stundarskránni minni aðeins og breytti um ísl og stæ hóp en ég er ekkert smá ánægð með allt núna :) er byrjuð í sögu og spænsku og mér finnst ekkert smá gaman í báðum, sérstaklega sögu hehe kennarinn er snillingur! :P

Annars er svosem voðalega lítið að frétta af mér.. er enn atvinnulaus og stefni mjög hratt í gjaldþrot! Ég er að segja ykkur það, ég hef engan veginn efni á því að lifa þessa dagana.. :( Langar svo að fara að vinna og fá peeeening!! Er nánast farin að fá fráhvarfseinkenni hérna haha þoli ekki að sitja bara heima og gera ekki rassgat! Glatað! Ef einhver veit um einhvern stað þar sem ég get fengið vinnu, let me know!

Helgin er bara búin að fara í tjill. Kíkti aðeins á Tinnu sætu í gær niðrá Art. Fór svo bara og tók mér spólur og hafði það svo voða næs uppí rúmi ;) hehe Svo já, helgin er eiginlega bara búin að fara í eitthvað video gláp og tjill.. það var hvort sem er eeeekkert að gerast!
En næsta helgi verður ábyggilega skemmtilegri ef það verður eitthvað úr þessu afmæli hjá maríu og tinnu.. vonum það allavegana ;)

en ég er farin að gera eitthvað ;)
Ciao <33
Versla, versla oog versla..Sara Hilmars
[np; dr.mister & mister handsome - dirty slut <3 ;*]
[dressed; leggings, peysukjóll && grár bolur]

Mér fkn LEIÐIST!! Klukkan er að ganga 11 á föstudagskvöldi og ég sit heima í tölvunni... sad? JÁ!
Ég svaf til 3 í dag þar sem ég náði ekki að sofna fyrr en klukkan eitthvað 5-6 og er búin að vera drullu þreytt í allan dag.. svo að planið var að eiga bara cosy kvöld en nú er ég í geðveiku stuði að fara að gera eitthvað! En það eru allir e-ð voða slakir í kvöld svo ætli maður nördist ekki bara heima í staðinn hehe jeee..
En í gær skellti ég mér með Maríu og Hafrúnu sætu í bæinn. Tókum 1 rútuna og byrjuðum í Kringlunni. Þar keypti ég mér diesel buxur og svona arabaklút hehe bara flott og stelpurnar versluðu e-ð líka ;) Svo kom mamma Hafrúnar að ná í okkur og við fórum niðrá Laugarveg. Við María biðum eftir Hafrúnu meðan hún var í sjónmælingu og svo var bara lagt í búðirnar á ný ;) hehe Við fórum svo í Skarthúsið þar sem ég svona létt missti mig heheh Ég má ekki fara þarna inn, ég kaupi alltaf eitthvað lol
En já svo var bara farið heim og tjillað ;)
Í dag skellti ég mér svo í bíó með múttu og pabba, cause I'm cool like that ;) haha
Við fórum í smárann svo ég gat kíkt aðeins á útsölurnar, again hehe Ég keypti mér geðveikan svona peysukjól, æ eins og er búið að vera svo mikið í tísku.. og svo splæsti pabbi í eina kápu handa mér :D hehe svo ég er bara ánægð. Langar samt eiginlega aftur á útsölurnar.. heheh má það??
En jæja, kannski maður fari bara og taki spólu eða e-ð... nenni allavegana ekki að hafa þetta lengra :P
2007!Sara Hilmars
Jæja, þá er 2007 bara gengið í garð.. ég held að þetta muni bara verða gott ár, eruði ekki sammála? :D
Stelpudjammið okkar á föstudaginn breyttist nú pínu, en ég held að við séum allar sammála um að þetta hefði verið bara fínt kvöld :) Ég, tinna og maría fórum til karenar og alda var líka með okkur. Við gerðum okkur sætar þar og fórum svo niðrá kidda. Þar var allt voooða rólegt svo við ákváðum að tjékka hvort við kæmumst inná sölvaballið. Við komumst svo inn og þar var bara dansað og spjallað og ég held að ég hafi verið komin heim um hálf 4. Það eru svo komnar inn myndir frá kvöldinu ;)
Gamlárskvöldið var svo æði! Þrátt fyrir að það hafði nákvæmlega ekkert verið að gerast þá skemmtum við okkur sko ekkert smá vel! Ég fór til Maríu um 11 leytið og Tinna og Hafrún voru þar fyrir. Við vorum þar til svona 2 og skelltum okkur svo niðrá Kidda. Þar var nú bara voða fámennt og rólegt svo við ákváðum að fara heim til Karenar. En þar voru bara allir farnir að sofa og e-ð svo það var voða lítil stemning þar.. svo að við stelpurnar röltum heim til Hafrúnar og þar var svo setið og hlegið og hlegið til ábyggilega svona 5. Þá kom mamma Hafrúnar heim svo ég, tinna og maría fengum þá 'frábæru' hugmynd að fara heim til mín að sofa... Ég ætla nú ekkert að vera að fara útí það hvað gerðist næst því ég held að það sé alveg óþarfi að vera ræða það eitthvað frekar. Eins og maður segir, it's history ;)
En við maría vöknuðum svo rosa sprækar um hádegið í gær og dagurinn var bara tekinn í tjill! Ég er enn blá, marin og bólgin og svo stirð að ég mér líður eins og eldgamallri kellingur.. 8-) helvítis hálka! En svona er þetta..

Annars er ekkert plan fyrir vikuna. Mig langar dáldið að kíkja á útsölur.. er einhver game í það með mér?? Svo byrjar skólinn bara á fullu á mánudaginn.. verður ekki bara fínt að byrja aftur? Held það.. ég kann náttúrulega ekkert að vera í fríi :P hehe
Mig hlakkar líka ekkert smá til að byrja í spænsku! Er geðveikt ánægð að hafa komist inn :)
Svo er bara að reyna að standa við áramóta heitin.. ég er ekki aaalveg að standa mig, en ég er að spá í að taka bara mín í gildi í næstu viku eða eitthvað haha Má það? :P
Annars er ég bara með þessu típísku áramóta heit.. léttast um helling fyrir sumarið, standa mig betur í skólanum, ná bílprófinu.. hehe
En jæja, nennekki meiru! Ég heimta komment ;) hehe
Áramótaskap ;)Sara Hilmars
[np; Infernal - Self Control ;* ELSKA þetta lag]
[dressed; VS náttföt og bleik peysa ;P]
Tími á blogg? Held það ;)
Í gær vaknaði ég um 12 leytið og þá drifum við pabbi okkur á Selfoss svo ég gæti keypt miða á Basshunter. En þegar við komum í hljóðhúsið var okkur sagt að það væri eitthvað helvítis rugl með þessa tónleika því þeir í Ölfushöllinni höfði ekki skemmtanaleyfi eða eitthvað.. once again 8-) Svo okkur var ráðlagt að bíða með að kaupa miða þangað til að það væri komið í ljós hvar þetta yrði og sovna..
Þetta var semsagt hálfgerð fýluferð en ég keyrði bara heim og dreif mig að taka mig aðeins til og Elín kom svo til mín :);*
Við ætluðum að taka 1 rútuna í bæinn en fjandans rútan þurfti að vera á réttum tíma svo við misstum af henni.. típíst, hún sem kemur ALDREI á réttum tíma! Svo við löbbðum aftur heim og vorum bara eitthvað að tjilla hér og var planið að taka þá bara 4 rútuna í staðinn.. En svo ákvað hún Elín elska alltí einu að hún hefði ekki efni á að borga í rútuna og ætlaði þessvegna ekki með.. *-) En ég þurfti að komast í bæinn þannig að ég hringdi í stelpurnar til þess að fá þær með mér og náði ég svo í Heiðu, 10mín áður en rútan átti að fara, og hún vildi koma með ;) En svo vorum við orðnar svo seinar að pabbi ákvað bara að skutlast með okkur í bæinn og bíða eftir okkur! haha Svo við fórum í Smárann og löbbuðum eitthvað um þar. Ég fann ekki neitt sniðugt en Heiða náði að kaupa sér eitthvað ;) En þar sem ég náði ekki að kaupa neitt ákvað pabbi að við myndum bara skella okkurí Kringluna líka. Þar var röllt útum allt og ég var alveg að gefast upp þegar við fórum inní Sautján og þar fann ég alveg fullkominn bol :D Svo ég keypti hann og svo fórum við Heiða og fengum okkur brauðstangir á Domino's :P mmm namm hehe
Svo var bara keyrt heim og vorum við komin í hveró um svona 8 - hálf 9 leytið.
Ég hringdi þá í Elínu og hún kom til mín þar sem hún ætlaði að gista. Við vorum bara eitthvað að tjilla og horfðum svo á Just my luck. Bara fyndin! Eftir hana nenntum við ekki að fara að sofa svo við horfðum á 40 year old virgin hehe snilld ;) Svo var planið að fara að sofa en við vorum að spjalla svo mikið að ég held að við höfum ekki sofnað fyrr en um hálf 7-7 leytið hahah :P
Við ætluðum svo að vakna klukkan 10 því Elín þurfti að fara í bæinn.. En ég held að ég hafi slökkt á símanum í svefni þegar hann hringdi svo við sváfum til 1! hahah
Ég er svo bara búin að vera eitthvað að tjila hérna síðan hún fór. Er núna að bíða eftir að hann bróðir minn drulli sér á fætur svo ég geti dregið hann með mér á Selfoss hehe
hahah oj lúðar :'D :P
Svo er það stelpudjamm í kvöld!! Ég, María og Tinna ætlum að hittast svo skella okkur á Kidda, þar er eitthvað staffapartý fyrir starfsfólkið í Sunnumörk. Frír bjór og svona ;) hehe Held að Karen og Halla ætli líka, eitthvað til í því? Vona það allavegana ;) Held að þetta verði bara fínt kvöld :)
Svo eru bara áramótin eftir 2 daga!!! Get sko ekki beðið! Þetta verður geggjað, ekki satt stelpur?? ;)
En ég held að þetta sé orðið nógu drullu langt hjá mér svo ég ætla að fara að hætta þessu hehe Vil bara óska öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir það gamla elskunar mínar! ;* Elsa ykkur öll :);**
Síjú!
-Sara í áramótaskapi-
P.S. Ef þið kvittið ekki krakkar þá hætti ég að leika við ykkur!! ;)